Börn sem skoða aðra eða báðar sýningar Landnámsseturs fá skemmtilega möppu að gjöf. Í möppunnni er að finna  fyrsta sögukaflann í ævitýrinu um Sögu, 9 ára stelpu og álfastrákinn Jökul. Í Landnámssetrinu fær barnið afhenta nýjan sögukafla, kafla um hvernig Saga með snarræði bjargaði Jökli úr miklum hremmingum. 

 

Alls hittast Saga og Jökull á 10 stöðum á Vesturlandi og á hverjum stað gerist nýtt ævintýri sem sagt er frá í sögukafla sem barnið fær afhent á staðnum og getur bætt í möppuna. 

 

Einnig þarf að passa að fá stimpil í möppuna til að færa heim sönnun á að búið er að heimsækja viðkomandi stað.

 

Þegar stimplarnir eru orðnir fimm, fær barnið litla gjöf og svo aftur þegar stimplarnir eru orðnir tíu. 

 

Á kortinu sérðu á hvaða stöðum hægt er að nálgast möppu eða sögukafla um Sögu og Jökul.

 

SJÁUMST Á VESTURLANDI Í SUMAR