Mr. Skallagrímsson einleikur eftir Benedikt Erlingsson

Leikari: Benedikt Erlingsson

Leikstjóri: Peter Engkvist

Leikmynd og búningur: Ragnar Kjartansson

Lýsing: Lárus Björnsson

Framleiðendur: Söguleikhúsið fyrir Landnámssetur í Borgarnesi

 

Umsagnir um sýninguna

 

SÝNINGASKRÁ

 

Mr. Skallagrímsson er einleikur saminn og fluttur af Benedikt Erlingssyni. Leikritið var frumsýnt í samstarfi við Listahátíð á opnunardegi Landnámsseturs þann 13. maí 2006 og sýnt við miklar vinsældir til loka október. Þá var gert hlé til 3. mars á meðan Benedikt leikstýrði leikritinu Ófagra veröld í Borgarleikhúsinu. 

 

Mr. Skallagrímsson hlaut einróma lof bæði áhorfenda og gagnrýnenda og var valin athyglisverðasta leiksýning ársins 2006 af gagnrýnanda Morgunblaðsins. Benedikt var svo valinn Uppfræðari ársins þegar Samfélagsverðlaunum Fréttablaðsins voru afhent í febrúar 2007. Með flutningi sínum opnar Benedikt heim Egils sögu fyrir þeim sem annars myndu ekki áræða að lesa hana.

 

Mr. Skallagrímsson hlaut einnig þrjár tilnefningar til Grímuverðlauna; Besta leiksýning ársins, besti leikari í aðalhlutverki og besta handrit. Auk þess var Benedikt tilnefndur sem besti leikstjórinn fyrir Ófagra veröld. Benedikt Erlingsson og fékk þrjár Grímur besti handritshöfundur og leikari í Mr. Skallagrímsson og besti leikstjóri.

 

Benedikt  byggir leikrit sitt á sögunni af Agli Skalla Grímssyni – eða eins og hann segir sjálfur segir Egilssögu á 120 mínútum. Og sögusviðið er allt um kring og það nýtir Benedikt sér til fullnustu. Hann færir atburði sem gerðust fyrir meira en 1000 árum til samtímans á snilldarlegan hátt svo úr verður ógleymanleg upplifun.

 

Að lokinni frumsýningu skrifaði Flosi Ólafsson ma þetta: „Að mínum dómi markar flutningur Benedikts Erlingssonar á Egils sögu Skallagrímssonar tímamót í íslenskri leikhúsmenningu…  …Mér finnst ekkert ofmælt þó ég segi að nálgun Benedikts og túlkun hans á verkinu sé merkasta framlag íslenskrar leikhúsmenningar til  gullaldarbókmenntanna frá upphafi.  Benedikt flytur efnisþráð Eglu á svo kaldhæðinn og töfrandi hátt að manni verður ljóst að það er ekkert athugavert við það að  lesa íslenskar fornbókmenntir með bros á vör og hlátur í huga.”

 

Og lesbók Morgunblaðsins mælti sérstaklega með sýningunni:

Við mælum með því að leiklistaráhugafólk leggi leið sína í Landnámssetur Íslands í Borgarnesi að sjá Mr. Skallagrímsson í flutningi Benedikts Erlingssonar. María Kristjánsdóttir talað í dómi hér í Morgunblaðinu um kynngimátt sagnamannsins Benedikts: "Hann hefur okkur áhorfendur í hendi sér; heldur okkur við frásögnina, við engjumst um af hlátri, grípum andann á lofti, dáumst að honum; hvílir okkur með því að tefja frásögnina með útúrdúrum. Haukfránn, eldsnöggur - og áreynslulaust - virðist hann þegar upp er staðið hafa spunnið áfram eða skáldað upp þessa fornu sögu úr nærveru okkar, tilvist okkar."

 


Miðaverð kr. 3500