Febrúar, 2017
Nánari upplýsingar
Thors saga Jensen á Sögulofti Landnámsseturs Guðmundur Andri Thorsson segir frá langafa sínum Æfi athafnamannsins Thors Jensen var mikið „Kolbíts ævintýri“. Hann kom til Íslands árið 1878, fátækur föðurlaus unglingur
Nánari upplýsingar
Thors saga Jensen
á Sögulofti Landnámsseturs
Guðmundur Andri Thorsson segir frá langafa sínum
Æfi athafnamannsins Thors Jensen var mikið „Kolbíts ævintýri“. Hann kom til Íslands árið 1878, fátækur föðurlaus unglingur aðeins 14 ára gamall til að gerast búðarsveinn hjá Bryde kaupmanni á Borðeyri. Hann kynnist lífsförunaut sínum Margréti Þorbjörgu, kemur undir sig fótunum og verður ríkasti maður landsins.
En fyrsta alvöru starfið sem hann fær er þegar honum 17 ára gömlum er treyst til að taka ábyrgð á verslun í Borgarnesi fyrir norska kaupmanninn Johan Lange. Sú verslun var einmitt í húsinu sem nú hýsir veitingarhús Landnámssetursins. Það er gaman að geta þess að það var svo Thor Jensen sem stóð fyrir að láta byggja pakkhúsið þar sem nú er Söguloft Landnámsseturs.
Hann hóf sinn eigin verslunarrekstur á Akranesi en varð gjaldþrota um aldamótin og flutti þá til Hafnarfjarðar og vann sig hratt upp úr sárri fátækt. Hann vann sig hratt uppúr sárri fátækt og varð á stuttum tíma einn ríkasti maður landsins. Hann var í forustu við að leiða Ísland inn í nútímann á fyrrihluta tuttugustu aldar. Hann var dáður fyrir stórhug sinn, örlæti og myndarskap í öllu sem hann tók sér fyrir hendur en sumir höfðu líka horn í síðu hans og sona hans sem voru í hópi valdamestu manna landsins á sinni tíð. Einn litríkasti karakter Íslands á sínum tíma.
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ætlar að segja frá þessum litríka og umdeilda langafa sínum á Söguloftinu og verður fyrsta sýning 23. september nk.
Klukkan
(Laugardagur) 20:00 - 22:00