Janúar, 2017

21jan20:0022:00SVARTI GALDUR Á ÍSLANDI kl. 20:00Magnaður einleikur eftir Geir Konráð Theodórsson

Nánari upplýsingar

SVARTI GALDUR Á ÍSLANDI er magnaður einleikur eftir og í flutningi Geirs Konráðs Theodórssonar. Þar vefur hann saman minnum úr þekktum þjóðsögum sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar og sem ömmur notuðu gjarnan til að hræða börn fyrir svefninn hér á árum áður. Á hryllingslegan en glettinn máta er sagan af svarta galdri sögð; af því hvernig galdrabókin Gráskinna berst til landsins með Sæmundi fróða á baki Kölska í selslíki árið 1100 og hvernig galdurinn og mystikin hefur áhrif á Ísland og á íbúa þess. Sagan berst frá Sæmundar fróða í gegnum aldirnar allt til þess að fjölkunnugur útlagi úr Surtshelli sekkur ofan í jökul með síðust galdraleifarnar árið 1750. Þarna koma við sögu margar þekktar persónur úr Íslandssögunni, Sæmundur fróði, Gottskálk grimmi, Hellismenn, Galdra Loftur svo aðeins fáir séu nefndir. En er það víst að svarti galdur á Íslandi heyri sögunni til? Lifir hann kannski enn með okkur í dag?

Lengd: 90 mínútur
Miðaverð: 3500 kr
Miðaverð: 3000 kr fyrir eldri borgara og námsmenn
Frítt fyrir grunnskólabörn í fylgd með fullorðnum

Höfundur og leikari: Geir Konráð Theodórsson
Leikstjóri: Theodór Kristinn Þórðarson
Sýningarstjórn og uppsetning: Eiríkur Þór Theodórsson

Klukkan

(Laugardagur) 20:00 - 22:00



X