Landnámssetrið er til húsa í tveimur af elstu húsum Borgarness sem tengd eru saman með glæsilegri tengibyggingu sem hönnuð er af Sigríði Sigþórsdóttur, arkitekt. Húsin eru í neðsta hluta gamla Borgarness, við brúarsporðinn út í Brákarey.
Á aðalhæð og í kjallara gamla pakkhússins (sem þið sjáið á myndinni til hægri) eru sýningar um landnámið og Egilssögu en í risinu er hið margrómaða Söguloft þar sem settar hafa verið upp fjöldi vinsælla leiksýninga. Sjá viðburðadagatal á forsíðunni.
Sýningarnar um landnámið og Egils sögur eru opnar alla daga frá kl.10-21. Farið er í gegnum þær með hljóðleiðsög sem fáanleg er á 14 tungumálum auk sérstakrar barnaleiðsagnar á íslensku.
Í Landnámssetrinu er einnig afar vinsæll veitingastaður þar sem boðið er upp á hollan og góðan mat á viðráðanlegu verði.
Í nýju tengibyggingunni er verslun með alls kyns fallega gjafavöru þar sem áhersla er lögð á íslenska hönnun og erlendar bækur sem tengjast sögu og náttúru.
Þegar hugmyndin að Landnámssetri var kynnt fyrir sveitarstjórnarmönnum í Borgarnesi hafði Pakkhúsið nýlega verið gert upp með styrk frá Húsafriðunarnefnd. Það var Magnús Skúlason, arkitekt sem leiddi verkið en Stefán Ólafsson og hans menn hjá SÓ húsbyggingum sem unnu það. Kjallari hússins var ekki manngengur og til þess að hægt væri að koma Egils sýningunni þar fyrir þurfti að dýpka kjallarann um rúmlega 1 meter. Og það er ekki síst andrúmsloftið í þessum niðurgrafna kjallara sem gefur Egils sýningunni sinn dulúðga og mystiska blæ.
Þessar byggingar eru eitt besta dæmi um gamlar byggingar sem gengið hafa í endurnýjun lífdaga í Borgarnesi.
Hugmyndin að Landnámssetri fengu Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir sumarið 2003. Þau kynntu hana fyrir sveitarstjórnarmönnum sem tóku vel í hana og undirbúningur hófst. Gerð var viðskiptaáætlum undir leiðsögn starfsmanna hjá SSV þar sem viðskiptamódelið var ákveðið sem fól í sér að reksturinn skyldi vera undir stjórn Sigríðar og Kjartans. Þegar sýningarnar voru í undirbúningi í pakkhúsinu við hliðina á veitingahúsinu ákváðu börn fyrrverandi kaupfélagsstjóra Ólafs Sverrissonar og konu hans Önnu Ingadóttur að kaupa veitingahúsið og láta aðlaga það væntanlegum rekstri Landnámsseturs til minningar um foreldra sína. Þau styktu endurbætur á húsinu og uppsetningu sýninganna og hafa alla tíð verið mikilvægir bakhjarlar Landnámsseturs.
Fjöldi fyrirtæka styrktu uppsetningu sýninganna og ber það helst að nefna Sparisjóð Mýrasýslu, VÍS, Samson, Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Orkuveituna, Samskip, Límtré Vírnet, og Loftorku. Sveitarfélagið Borgarbyggð átti svo afar mikilvægan þátt í að styðja við stofnun Landnámsseturs og veitti því brautargengi fyrstu rekstarárin. Menningarráð Vesturlands hefur einnig stutt vel við menningarstarfið sem verið hefur fastur liður starfseminnar frá upphafi. Öllum þessum aðilium eru færðar innilegar þakkir.
Landnámssetrið var opnað 13. maí 2006