September, 2022

17sept20:0021:00SÍLDARSTÚLKUR

Nánari upplýsingar

Það var mjög mikið kapp á milli síldarstúlkna! Sérstaklega á milli okkar siglfirsku.”
Síldarstúlkur er leiksýning á söguloftinu á Landnámssetrinu sem fjallar um minningar kvenna af síldarævintýrinu á Siglufirði. Leikkonan Halldóra Guðjónsdóttir segir sögur síldarstúlkna af öllum stéttum sem sameinuðust á bryggjunni frá síðustu aldamótum þar til síldin hvarf af Íslandsmiðum á sjöunda áratugnum. Um tónlist sér harmonikkuleikarinn Margrét Arnardóttir og leikstjórn er í höndum Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. Síldarstúlkur er lífleg nýjung í þá flóru sem fjallar um síldarárin á Siglufirði.
Leikritið dregur fram í sviðsljósið upplifanir síldarstúlkna af kvennamenningu þessara ára, viðhorf þeirra til vinnu, fjölskyldulífs og félagslífs og hvernig tókst að uppfylla dagdrauma.
Handritið er að miklu leyti innblásið af sögum frá ömmum höfunda verksins. Amma Andreu hét Hólmfríður Steinþórsdóttir. Í september árið 1952 var hún ræst út í síld, en hún kallaði um hæl út um gluggann á Hlíðarveginum ,,ég get ekki komið, ég var að fæða!” – þá nýbúin að fæða barn, móður Andreu, Elínu Sigríði Björnsdóttur. Aðeins fáeinum dögum eftir barnsburðinn var Hólmfríður mætt aftur á síldarplanið.
Leiksýningin Síldarstúlkur glæðir sögur sem þessar lífi.
Verkið tekur um 60.mínútur.

Aðstandendur
Leikari: Halldóra Guðjónsdóttir
Leikstjóri: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
Hljóðmynd, tónlist og flutningur: Margrét Arnardóttir
Höfundar: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir og Halldóra Guðjónsdóttir
Grafískur hönnuður: Dóra Haraldsdóttir

Miðasala hér

Klukkan

(Laugardagur) 20:00 - 21:00



X