Október, 2024

06okt16:0018:00ARNAR JÓNSSON - LÍF MITT Í LJÓÐUMkl. 16:00

Nánari upplýsingar

Heiðurslistamaður Grímunnar 2023 Arnar Jónsson.

Arnar er einn af okkar ástsælustu leikurum en hefur einnig um árabil getið sér gott orð fyrir sinn einstaka flutning á ljóðum. Hann gaf nýlega út plötuna LJÓÐASTUND MEÐ ARNARI þar sem hann fer með nokkur af sínum uppáhaldsljóðum en hér mun hann flytja okkur ljóð sem á einhvern hátt hafa snert við honum í gegnum tíðina og segja okkur sögur af því hvernig þau tengjast lífshlaupi hans.

Arnar segir sjálfur um kynni sín af ljóðlistinni: Ljóðið ratar til sinna og það á sannarlega við um mig. Ljóðið fann mig mjög ungan. Tónlist tungumálsins endurómar í ljóðinu – auk hugsunar og tilfinninga. Þannig er öll verund mannskepnunnar undir í knöppu formi margvíslegra mynda.

 

Klukkan

(Sunnudagur) 16:00 - 18:00



X