Apríl, 2025
15apr20:0022:00Kvöldstund á 78-snúningumKl. 20:00
Nánari upplýsingar
Ingi Garðar Erlendsson og Trausti Jónsson ræða um íslensku 78-snúninga hljómplötuna, (auðvitað með feitum tóndæmum), allt frá þeirri elstu (hver var hún?) – til þeirrar síðustu (og hver var hún?). Við
Nánari upplýsingar
Ingi Garðar Erlendsson og Trausti Jónsson ræða um íslensku 78-snúninga hljómplötuna, (auðvitað með feitum tóndæmum), allt frá þeirri elstu (hver var hún?) – til þeirrar síðustu (og hver var hún?).
Við sögu koma einsöngvarar, kórar og auðvitað dægurtónlist eins og hún var og hét. Hverjar voru vinsælustu plöturnar – og vinsælustu listamennirnir? Hvaða plötur hafa alveg týnst og finnast ekki?
Átt þú þér eitthvert óskalag á 78-snúningum sem þú vilt endilega fá að heyra? Sé svo mátt þú stinga upp á því sem óskalagi – aldrei að vita nema það finnist. Öll tónlist leikin af upprunalegum hljómplötum. Tillögur að óskalagi sendist á trj@simnet.is – merkt óskalag.
Miðasala á tix.is Frekari upplýsingar á landnam@landnam.is
Miðaverð er 2000 kr.
Klukkan
(Þriðjudagur) 20:00 - 22:00